Salthúsið á Þingeyri er elsta hús Þingeyrar byggt 1778.
Salthúsið hýsir nú Koltru handverkshús og upplýsingamiðstöð.
Koltra opnaði í dag þann 15. júní og að sögn Ragnheiðar Laufeyjar Önnudóttir starfsmanni Koltru hefur verið stöðugt rennsli hjá henni í dag. Greinilegur áhugi á íslensku handverki.
Koltra er opin alla daga frá 11-17 og hægt er að hafa samband varðandi opnun utan opnunartíma.
Myndir: Ragnheiður Laufey Önnudóttir.