Seiglurnar sigla hringinn í kring um landið í sumarið á skútunni Esju. 35 konur á öllum aldri taka þátt í siglingunni en markmið verkefnisins er að:
- virkja konur til siglinga við Ísland
- vekja athygli á heilbrigði hafsins
- hvetja alla til ábyrgrar umgengni við hafið og auðlindir þess
Skútan Esja er á Ísafirði um þessar mundir og býður til samtals um hafið og umgengni við það undir yfirskriftinni „Hafið er okkar umhverfi“.
Málþingið fer fram í Bryggjusal Edinborgarhússins á Ísafirði kl. 12:05 miðvikudaginn 16. júní og er það í samstarfi við Hafnir Ísafjarðarbæjar.
Dagskrá:
- Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, forstöðumaður rannsóknaseturs HÍ í Bolungarvík: Álagsþættir af mannavöldum og lífríki í strandsjó
- Sigríður Kristinsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun: Heilbrigt haf
- Catherine Chambers, rannsóknarstjóri hjá Háskólasetri Vestfjarða: Gildi íslenskra smábáta í sjávarútvegi
- Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri nýsköpunar, samfélagsábyrgðar og fjárfestatengsla hjá Brim: Mikilvægi sjálfbærni í sjávarútvegi
- Elena Dís Víðisdóttir, sérfræðingur í orkusviði Orkubús Vestfjarða og fulltrúi Bláma: Orkuskipti í sjávarrútvegi á Vestfjörðum.
Umræðum stýrir Bryndís Skúladóttir, verkfræðingur og Seigla. Gestir eru hvattir til að taka þátt í umræðum.
Boðið verður upp á léttar veitingar og er aðgangur ókeypis.