Atvinnu- og menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar hefur afgreitt vorúthlutun menningarstyrkja. Til ráðstöfunar voru 700 þúsund krónur. Eftirfarandi verkefni hlutu styrk:
- Eyþór Jóvinsson, Arnbjörn – handrit að kvikmynd í fullri lengd, kr. 50.000,-
- Gláma kvikmyndafélag, Gamanmyndahátíð Flateyrar, kr. 200.000,-
- Kvenfélagið Von, Dýrafjarðadaganefnd, Dýrafjarðadagar – barnadagskrá, kr. 100.000,-
- Listasafn Ísafjarðar, ljósmyndasýning á verkum Þorvaldar Arnar Kristmundssonar, kr. 50.000,-
- Byggðasafn Vestfjarða, sýning á hljóðfærum safnsins, landsmót harmonikkuunnenda og útgáfu á geisladisk, kr. 250.000,-
- Byggðasafn Vestfjarða, opnun sýningarinnar „Ég var aldrei barn“ í tilefni af 75 ára afmæli safnsins, kr. 50.000,-
Smári@bb.is