Ásgeir Hólm Agnarson hefur tekið að sér verkefni í óvenjulegri kantinum. Hann og fjölskylda hans tóku að sér kóp sem fæddist fyrir tímann og var yfirgefinn af móður sinni í fjörunni í Súðavík. Ásgeir hefur verið í sambandi við selasérfræðinga í Reykjavík.
Kópurinn var orðinn horaður og Ásgeir tók hann með sér heim. Kópurinn þarf að drekka á þriggja tíma fresti og Arna í Bolungarvík styður björgunarstarfið með að gefa rjóma enda veitir ekki af enda drekkur hann þrjá lítra af rjóma á dag.
Kópurinn ber nafnið Tóbías Eró.
Stefnt er að því að sinna Tóbíasi og styrkja og sundþjálfa svo hann geti lifað í náttúrunni.
Einstök vinátta hefur myndast milli heimilishundsins og Tóbíasar eins og sjá má á þessum myndum.