Fyrstu viku strandveiða lauk í gær. Meðalverð á óslægðum þorski á fiskmörkuðum var 249 kr/kg á þessum fyrstu 4 dögum strandveiða í ár. Það er 20 kr hærra verð en fékkst á sama tímabili í fyrra. Þegar tekið er tillit til stöðu evrunnar gagnvart krónu er hækkunin milli ára um 14%.
Landssamband smábátasjómanna bendir á margir gættu ekki að sér og veiddu umfram það sem leyfilegt er 650 þorskígildi, sem svarar til 774 kg af óslægðum þorski. Allur afli telur inn í pottinn og minnkar það sem kemur í hlut hvers og eins.
Fyrsta dag strandveiða var umframafli tæplega 10 tonn sem 111 bátar af 233 lönduðu.
Ekki er sektað vegna slíkra brota, en verðmæti umframafla rennur í ríkissjóð og má áætla að um 2,5 milljónir hafi runnið í ríkissjóð þennan fyrsta dag veiðanna