Frá og með 18. mars 2021 er felld niður línuívilnun í þorski, að því er fram kemur í tilkynningu á vefsíðu Fiskistofu.
Þar segir að línuívilnun í þorski verði aftur heimiluð frá og með upphafi næsta tímabili sem hefst 1. júní 2021.
Tímabilið náði því ekki fram í maí eins og vonir voru um þegar tilkynnt var að komið yrði á nýju þriðja tímabili sem átti að ná frá febrúar fram í maí og þannig brúa bil milli tímabila.