Ísafjarðarbær hefur auglýst til sölu Bedford dælubifreið, árgerð 1962.
Bifreiðin kom til Suðureyrar í tengslum við magnkaup á slökkvibifreiðum frá Bretlandi á árunum 1970-1975.
Ástand bifreiðarinnar er sæmilegt, er gangfær og var á númerum. Ýmislegt smálegt þarfnast endurnýjunar.
Áhugasamir kaupendur geta hafi samband við Axel Rodriguez Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs Ísafjarðarbæjar, í síma 450 8000 eða á axelov@isafjordur.is.
Frestur til að skila inn tilboðum eru tvær vikur.