Með stofnun þjóðgarðs á hálendi Íslands er verið að vernda eina stærstu auðlind landsins og stýra umgengni og nýtingu á henni. Að mati stjórnar Landverndar er ekki til farsælli leið til að ná markmiðum um vernd og sjálfbæra nýtingu. Með stofnun þjóðgarðs er á trúverðugan hátt unnið í samræmi við fræðilega þekkingu og haldgóða reynslu hér heima og erlendis frá.
Engar nýjar virkjanir
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landvernd. Þar segir að stjórn Landverndar styðji frumvarp um hálendisþjóðgarð en telur að það yrði til bóta að gera á því nokkrar breytingar. Meðal annars að stjórnunar og verndaráætlanir verði bindandi við skipulagsgerð, að engar nýjar virkjanir rísi í þjóðgarði og að almannarétturinn og frjáls för fólks verði meginregla fyrir ferðalög í þjóðgarði.
Hálendisþjóðgarður er umbótaverkefni
Stjórn Landverndar fagnar því að þetta mikilvæga umbótaverkefni sem vernd náttúru- og menningarminja á hálendinu er, sé komið til meðferðar á Alþingi Íslendinga. Mjög margt hefur verið sagt og ritað um Hálendisþjóðgarð undanfarna mánuði. Því miður virðist of oft gæta misskilnings á því hvað felst í því að skilgreina landssvæði sem þjóðgarð. Vonandi verður frekari umfjöllun til að bæta úr því.
Stjórn Landverndar vonar og treystir að Alþingi fari vel yfir alla athugasemdir og geri á frumvarpinu þær breytingar sem eru nauðsynlegar eru taldar, og samþykki það með góðum stuðningi. Það yrði Íslendingum til heilla og vegsauka.