Frá og með 18 nóvember verða þær breytingar á sóttvarnarreglum að í fyrsta lagi verður starfsemi rakara, hárgreiðslustofa, nuddara heimiluð en nota skal grímur og hámark 10 manns í rými.
Í öðru lagi verða íþróttir barna og ungmenna, með eða án snertingar heimilaðar.
Í þriðja lagi verður 25 manna hámark í hverju rými í framhaldsskólum en fram verður þó tveggja metra regla og grímuskylda ef ekki er hægt að uppfylla hana.
Líkamsræktarstöðvar og sundlaugar áfram lokaðar sem og krár og skemmtistaðir. Þá verður veitingastöðum áfram óheimilt að hafa opið lengur en til klukkan 21.
Tíu manna samkomubannið er enn i gildi sem þýðir til dæmis að inni á hárgreiðslustofu mega ekki vera fleiri en tíu viðskiptavinir í einu.
Á Vestfjörðum eru nú tveir í einangrun og 10 í sóttkví.