Indriði á Skjaldfönn tilkynnti síðdegis að hann væri farinn í berjamó þar sem útlit væri fyrir næturfrost og því ekki eftir neinu að bíða.
NÆTURFROST.
Úti í bili er veðravá,
víst skal þó að öllu gá.
Næturfrost í nótt að fer,
nú er ráð að tína ber.