Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu um land allt. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opnaði á þriðjudag formlega fyrir umsóknir í nýjan Matvælasjóð.
Frumvarp ráðherra um stofnun sjóðsins var samþykkt á Alþingi í apríl sl. og var alls 500 milljónum króna varið til stofnunar sjóðsins og verður þeim úthlutað á þessu ári.
Matvælasjóður hefur fjóra styrkjaflokka
Kelda
Kelda styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu. Tilgangur Keldu er að veita rannsóknastyrki til að hægt sé að afla nýrrar þekkingar sem stuðlar að nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu.
Afurð
Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð. Líta má á þennan flokk styrkja sem tækifæri til að móta og þróa afurð úr með hráefnum sem tengjast matvælaframleiðslu og gera hana verðmætari í ferlinu. Afurðirnar eiga að auka nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla-framleiðslu. Verkefnin geta verið á ólíkum stað í ferlinu, á byrjunarreit eða lokastigum.
Bára
Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi. Styrkur úr Báru fleytir hugmynd yfir í verkefni. Í Báru leita þeir frumkvöðlar, og fyrirtæki sem eru yngri en fimm ára, sem vilja skoða hugmynd, hráefni eða aðferðir sem stuðla að nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu.
Fjársjóður
Fjársjóður styrkir sókn á markað. Skilyrði Fjársjóðs er að varan sé afurð úr íslenskum hráefnum sem ætlað er til matvælaframleiðslu. Tilgangurinn er að veita styrk til fyrirtækja til að styrkja markaðsinnviði og markaðssókn afurða tengdum íslenskri matvælaframleiðslu og stuðla þannig að nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu.