Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2020/2021.
- Að þessu sinni er úthlutað 353 þúsund tonnum í þorskígildum talið samanborið við um 372 þúsund þorskígildistonn í fyrra.
- Úthlutun í þorski er tæp 202 þúsund tonn og dregst saman um 13 þúsund tonn frá fyrra ári.
- Ýsukvótinn eykst um 3 þúsn tonn og fer í rúm 35 þúsund tonn.
Vakin er athygli á að síðar á árinu verður úthlutað aflamarki í deilistofnum og ekki er óalgengt að aukið sé við aflamark í uppsjávarfiski. Benda má sérstaklega á að engri loðnu var úthlutað að þessu sinni.
Úthlutun eftir fyrirtækjum
- Fimmtíu stærstu fyrirtækin fá úthlutað sem nemur um 90,4% af því aflamarki sem úthlutað er og hækkar það hlutfall lítillega frá í fyrra.
- Alls fá 326 fyrirtæki eða lögaðilar úthlutað nú eða 10 færri en í fyrra.
- Sé litið til þeirra sem eru með mesta úthlutun fær Brim (áður HB Grandi) mestu úthlutað til sinna skipa eða 9,6% af heildinni, næst kemur Samherji með 6,9% og þá FISK Seafood með 6,3% og Þorbjörn hf. með 5,6%.
- Úthlutun eftir útgerðarflokkum
- Bátar með krókaaflamark eru nú 238 og fækkar um 47.
- Skipum í aflamarkskerfinu fækkar um 6 á milli ára og eru nú 175.
- Bátar undir 15 m og 30 tonnum fá úthlutað rúmlega 46 þúsund þorskígildistonnum
- Bátar yfir 15 og 30 tonnum fá úthlutað 306 þúsund þorskígildistonnum.
-
- Júlíus Geirmundsson ÍS með mestan kvóta
- Aflahæstur vestfirskra skipa er Júlíus Geirmundsson ÍS með 5.712 þorskígildi. Páll Pálsson ÍS er næstur með 5.335 þígtonn. Júlíus er 15. kvótahæsta skipið á landinu og Páll Pálsson í 16. sæti. Þá koma:
- Sirrý ÍS í 23. sæti með 4.580 þígtonn
- Núpur BA í 53. sæti með 2.141 „
- Jónína Brynja ÍS í 59. sæti með 1.860 „
- Fríða Dagmar ÍS í 71. “ með 1.578 „
- Indriði Kristins BA í 83. “ með 1.317 „
- Einar Guðnason ÍS 87. “ með 1.210 „
- Otur II ÍS 114. “ með 707 „
- Stefnir ÍS 118. “ með 653 „