Samgöngu- og sveitarstjórnarráðueytið gerir athugasemdir við fimm samninga Ísafjarðabæjar við við önnur sveitarfélög og byggðasamlög. Frestur til úrbóta er veittur til 15. nóvember 2020.
Samningarnir eru :
- Samningur frá 2003 um meðferð barnaverndarmála sem er við Bolungavíkurkaupstað og Súðavíkurhrepp.
- Samstarfssamningur allra sveitarfélag á Vestfjörðum frá 2010 um málefni fatlaðs fólks með Byggðasamlagi Vestfjarða.
- Samþykkt Byggðasamlags Vestfjarða frá 2015.
- Samningur frá 2008 milli sex sveitarfélaga á Vestfjörðum og Umhverfisráðneytisins um rekstur Náttúrustofu Vestfjarða.
- Samningur við Bolungavíkurkaupstað um gagnkvæman aðgang íbúa að íþróttamannvirkjum.
- Vill ráðuneytið að ísafjarðarbær yfirfari samningana og bæti úr annmörkum.
Það ráðist svo af svörum sveitarfélagsins hvort ráðuneytið telji ástæðu til að taka stjórnsýslu sveitarfélagsins til formlegrar skoðunar segir í bréfi ráðuneytisins sem kynnt var á fundi bæjarráðs í gær.