Eins og áður hefur komið fram á bb.is hefur Landsnet gefið út framkvæmdaáætlun fyrir næsta áratug, opinn fundur var á Ísafirði um áætlunina í byrjun júlí.
Fjórðungssamband Vestfjarða og Vestfjarðarstofa hafa nú gefið út umsögn um áætlunina og birt á heimasíðu Vestfjarðarstofu. Þar kemur fram að um verulegar úrbætur verður að ræða hvað varðar afhendingaröryggi á Vestfjörðum. Hins vegar bendir Vestfjarðarstofa á að enn er ekki í augsýn jafnræði í stöðu Vestfjarða og annarra landshluta því framkvæmdir fyrir landið í heild munu áfram veita öðrum landshlutum samkeppnisforskot á Vestfirði og það þrátt fyrir þingsályktun Alþingis 26/148 þar sem Vestfirðir eiga að vera í forgangi í verkefnum er varða bætt afhendingaröryggi raforku. Vestfjarðarstofa telur að jafnræði landshluta verði ekki náð nema með tvöföldun Vesturlínu, frá Hrútatungu í Hrútafirði að Mjólká í Arnarfirði.
Þingsályktun 26/148
Þingsályktun númer 26/148 fjallar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku og Fjórðungssambandsið og Vestfjarðarstofa styðja þá ályktun í umsögn sinni. Í ályktuninni eru áhersluatriðin listuð upp með feitletrun þeirra atriða sem skipta Vestfirði mestu máli.
- Treysta skal flutningskerfið betur, tengja betur lykilsvæði og tryggja afhendingaröryggi raforku um land allt. Skulu Eyjafjarðarsvæði, Vestfirðir og Suðurnes vera sett í forgang.
- Skoða skal að hve miklu leyti megi nýta jarðstrengi með hagkvæmum hætti við uppbygginguna. Ekki verði ráðist í línulagnir yfir hálendið.
- Gæta skal jafnvægis milli efnahagslegra, samfélagslegra og umhverfislegra áhrifa við uppbygginguna.
- Standa skal að uppbyggingunni á opinn og fyrirfram skilgreindan hátt innan ramma kerfisáætlunar, þar sem valkostagreiningar eru lagðar til grundvallar.
- Styrking og uppbygging á flutningskerfinu skal miða að því að auka afhendingaröryggi raforku á landsvísu með sérstakri áherslu á þau landsvæði sem búa við skert orkuöryggi. Þá skulu möguleikar til fjölbreyttrar atvinnusköpunar á landsvísu hafðir að leiðarljósi við uppbygginguna. Allir afhendingarstaðir í meginflutningskerfinu skulu árið 2030 vera komnir með tengingu sem tryggi að rof á stakri einingu valdi ekki takmörkunum á afhendingu eða afhendingarrofi. Allir afhendingarstaðir í svæðisbundnum hlutum flutningskerfisins skulu árið 2040 vera komnir með tengingu sem tryggi að rof á stakri einingu valdi ekki takmörkunum á afhendingu eða afhendingarrofi. Fram að þeim tíma skal leitast við að tryggja afhendingaröryggi fyrir svæðisbundin flutningskerfi með afli innan svæðis.
- Tryggja skal að flutningskerfið mæti þörfum fyrir aukin orkuskipti í samgöngum og haftengdri starfsemi, m.a. að því er varðar innviði fyrir rafbíla, notkun raforku í höfnum og raforku til fiskimjölsbræðslna.
- Tryggja skal raforkudreifingu og raforkuöryggi með tilliti til mögulegra náttúruhamfara.
Umsögn Vestfjarðarstofu og Fjórðungsambandsins er ýtarleg og áhugaverð og hana má nálgast hér.
bryndis@bb.is