Hönnunargögn vegna áningastaða og stíga við varnargarðana undir Gleiðarhjalla voru lögð fram til kynningar í skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar í síðustu viku. Fylgiskjöl eru teikningar frá Verkís ehf. dags. 28. júní 2019.
Gert er ráð fyrir 6 áningarstöðum á leiðinni frá Grænagarði og út fyrir byggðina í Króki.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2020/06/gleidarhjalli_a_aningarst.png)