Icelandic Startups verðum með rafrænan kynningarviðburð á viðskiptahraðlinum Til sjávar og sveita fyrir Vestfirðinga á morgun, fimmtudag kl 15-16:30
Viðskiptahraðallinn Til sjávar og sveita: frá hugmynd í hillu býður upp á metnaðarfullan vettvang til vöruþróunar fyrir verkefni sem snúa að hátækni í matvælaiðnaði, nýjum lausnum í landbúnaði og haftengdum iðnaði og betri nýtingu hráefna þar sem sjálfbærni og nýsköpun eru höfð að leiðarljósi. Hraðallinn er tilvalinn vettvangur fyrir þá frumkvöðla sem vilja ná lengra á styttri tíma og efla tengslanetið til muna.
Hraðallinn, sem hefur göngu sína í annað sinn næsta haust, er einnig tilvalinn vettvangur fyrir þróun tæknilausna ætlaðar verslun og þjónustu, t.d. greiðslumiðlun, birgðastýringu, flutningi o.þ.h. sem snýr að því að koma vörum í hendur viðskiptavina. Hraðlinum er ætlað að hraða ferlinu frá því að hugmynd kviknar þar til vara er komin á markað.
Tíu fyrirtæki verða valin til þátttöku í tíu vikna viðskiptahraðal sem hefur göngu sína í annað sinn nú í haust. Lögð verður áhersla á að nýta fjarfundatækni þannig að hægt sé að takmarka ferðir til höfuðborgarsvæðisins fyrir þá sem búa annars staðar á landinu. Þátttakendur njóta leiðsagnar fjölda reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga auk fræðslu og þjálfunar og fjölda tækifæra til að koma hugmyndum sínum á framfæri og efla tengslanetið.
https://www.facebook.com/events/361549224820330/
Sjá nánari upplýsingar um viðskiptahraðalinn á www.tilsjavarogsveita.is, en opið er fyrir umsóknir til og með 15. júní.
Vonast er til þess að sem flestir mæti á kynningarfundinn sem fer fram í gegnum fjarfundabúnað fimmtudaginn kl 15:00 – 16:30.
Skráning fer fram hér: https://innovit.wufoo.com/forms/rvjjfj1161hm2z/