Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands undirrituðu 30. apríl sl. samstarfssamning um nýja námsbraut til meistaragráðu í sjávar- og vatnalíffræði með áherslu á fiskifræði.
Aðspurður sagði Sigurður Guðjónsson að hið nýja meistaranám væri mjög mikilvægt fyrir framtíð þessara fræðigreina hér á landi.
Einnig væri ánægjulegt að líta til þess að með samnignum muni samstarf Hafrannsóknastofnunar og Háskóla Íslands í rannsóknum og kennslu styrkjast enn frekar.
Þannig nýtist rannsóknaaðstaða stofnunarinnar, rannsóknastofur, eldisstöðvar og rannsóknaskip enn betur og nemendur fá betri og aukin tækifæri til rannsókna í sínu námi.