Undanfarin ár hefur verið farið í helgigöngu á föstudaginn langa í Önundarfirði og gengið að Holti. Þetta hefur verið vinsæll viðburður og aldrei fallið niður þó að veðrið hafi verið æði misjafnt. Þrátt fyrir samkomubann mun gangan heldur ekki falla niður í ár. Að þessu sinni ætlar sr. Fjölnir Ásbjörnsson að ganga einn milli Flateyrarkirkju og Holtskirkju og hefst gangan kl.10 á föstudaginn kemur. Streymt verður frá göngunni á facebooksíðu prestakallsins:
https://www.facebook.com/
Fjölnir vonast til þess að sem flestir sjái sér fært að koma með honum í gönguna í anda og fylgjast með þessu í tölvunni eða símanum. Útsendingin byrjar kl. 10:00 í Flateyrarkirkju og líkur væntanlega um tveimur tímum síðar í Holtskirkju.