Vesturbyggð auglýsir starf skólastjóra Patreksskóla laust til umsóknar.
Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna sýn á rekstur skóla og er tilbúinn til að leiða Patreksskóla í samræmi við skólastefnu Vesturbyggðar.
Í Patreksskóla eru 100 nemendur frá Patreksfirði og Barðaströnd og þar starfa 25 starfsmenn.
Starfrækt er leikskóladeild í skólanum og eru því nemendur á aldrinum 5-16 ára.
Nánari upplýsingar um Patreksskóla má finna á vefsíðu skólans.
Nýr skólastjóri þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. ágúst 2020.