Magnús Kr. Guðmundsson, athafnamaður frá Tungu í Tálknafirði varð níræður í gær.
Magnús er fæddur og uppalinn á Tálknafirði og var þar útgerðarmaður í rúmlega hálfa öld og mikill aflamaður. Magnús stofnaði 1980 fiskverkunina Þórsberg ásamt fjölskyldu sinni. Magnús var sæmdur fálkaorðunni árið 2004 fyrir störf að sjávarútvegsmálum. Magnús hefur lengi komið að fiskeldi í Tálknafirði, fyrst þorskeldi og svo silungseldi og stendur að rekstri Tungusilungs sem vinnur matvöru úr bleikju og silungi.
Það má segja að hafi verið vel við hæfi að honum barst í gær símtal þar sem greint frá því að vörur Tungusilungs höfðu hlotið glæsileg verðlaun í fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna.