Vefur Vesturbyggðar hefur verið tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna í flokknum Opinber vefur ársins.
Þetta er annað árið í röð sem vefurinn er tilnefndur til þessara verðlauna en vefurinn hlaut verðlaunin árið 2019 í sama flokki.
Verðlaunaafhendingin fer fram við hátíðlega athöfn á Hilton Nordica Hotel þann 13. mars n.k.
Vesturbyggð hefur notið leiðsagnar Greips Gíslasonar, ráðgjafa, við undirbúning nýs vefs og gerð samskiptastefnu. Hönnun og forritun er í höndum Kolofon.