Á vefsíðu Vesturbyggðar kemur fram að Isavia Innanlands ehf kannar áhuga aðila á verktöku á rekstri Bíldudalsflugvallar.
Þar kemur fram að um eftirtalin verkefni er að ræða:
Daglegur rekstur flugvallar, sem felur í sér eftirlit og umhirðu m.a. snjómokstur.
Flugupplýsingaþjónusta í tengslum við flug.
Viðbragðsþjónusta, slökkvi og björgunarþjónusta.
Viðhald og umhirða tækja og eigna flugvallarins.
Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband fyrir 15. febrúar næstkomandi, með því að senda póst á e-tenders@isavia.is þar sem gefið er upp nafn og kennitölu áhugasamra.
Vakin er athygli á því að einungis er verið að kanna áhuga.