Módel að fyrirhuguðum útsýnispalli á Bolafjalli er hluti af sýningu í Moskvu sem helguð er framtíðar arkitektúr í Evrópu.
Módelið er 1,8 m að lengd og sýnir hluta Bolafjalls og útsýnispallinn eins og hann kemur til með að líta út í fjallinu.
Sýningin kallast „Opinber arkitektúr – framtíð Evrópu“ og hún opnaði í gær og verður opin til 10. maí 2020. Eftir það er von á módelinu til sýningar í Bolungarvík.
Það eru Sei arkitektar í Reykjavík sem standa að gerð módelsins sem var smíðað af Fab Lab í Vestmannaeyjum en Sei arkitektar hönnuðu pallinn ásamt Landmótun og Argos.
Það er Schusev-ríkissafnið um arkitektúr ásamt Evrópsku menningarmiðstöðinni í Rússlandi og Evrópsku menningarmiðstöðinni á Ítalíu sem standa að sýningunni.