Miklar truflanir hafa verið á rafmagni á Vestfjörðum í dag. Í morgun snemma sló út Ingjaldssandslína frá Holti út á Ingjaldssand. Álftafjarðarlína slo út um hálf ellefu en var sett inn fljótlega. Um kl 11 varð rafmagnslaust vestan Gufudals og að Kletthálsi.um l 12 var tilkynnt um bilun í flutningskerfi Landsnets og varð þá rafmagnslaust víða á Vestfjörðum.
Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets sagði í samtali við Bæjarins besta að keyrt væri á varaafli og því væri rafmagn á norðanverðum Vestfjörðum. Nú rétt áðan var komin spenna á Keldeyri og þar með fá sunnanverðir Vestfirðir rafmaggn.
Allir staðir nema Önundarfjörður og Tálknafjörður eru komnir með rafmagn annað hvort frá varafali eða tengdir við byggðalínuna.
Uppfært kl 13:30.
Rafmagn á að vera komið á hjá öllum notendum á Ísafirði. Þó á eftir að staðfesta að það sé komið rafmagn í Arnardal.
Önundarfjörður er allur rafmagnslaus vegna seltuvandamál í tengivirkinu í Breiðadal. Undirbúningur á þrifum á virkinu er hafinn. Bilun er í varavél á Flateyri og er því ekki hægt að keyra varaafl á bæinn.
Rafmagn er komið á Tálknafjörð.
Kl 13:39 sveitir úti við Patreksfjörð
Vegna seltu þarf að hreinsa spennuvirki á Patreksfirði. Á meðan að vinna fer fram þarf að taka út rofa fyrir jarðsteng Barðaströnd og Rauðasands- og Kollsvíkurlínu og verður þar með rafmagnslaust á sveitum í kringum Patreksfjörð. Áætlaður verktími er um 2 klst.