Í dag 6. desember á Hjalti Einar Þórarinnsson, endastjóri Ísafjarðarhafnar 65 ára afmæli.
Hjalti ætlar að fagna afmælinu á sinn einstæða hátt og hefur opið hús þar sem hann býður fjölskyldu sinni og öllum vinum og velunnurum til veislu þar sem gera má ráð fyrir allskonar uppákomum og skemmtilegheitum í Oddfellow húsinu á Ísafirði frá 18:00-21:00 í dag afmælisdaginn sjálfan.
Hjalti vonast til að sjá sem flesta samferðamenn sem vilja gleðjast með honum á þessum merka degi.
Samstarfsmenn Hjalta endastjóra á höfninni senda honum innilegar hamingjuóskir með daginn.