Það markar alltaf ákveðin tímamót í aðdraganda aðventunnar þegar að jólajógúrtin frá Örnu í Bolungarvík kemur í verslanir.
Jólajógúrtin er með eplum og kanilbragði og er í miklu uppáhaldi hjá ansi mörgum sem bíða komu hennar spenntir á hverju ári.
Jógúrtin kemur þó eingöngu í takmörkuðu upplagi þannig að það borgar sig að hafa hraðar hendur til að missa ekki af dásemdinni.