Hreppsnefnd Kaldrananeshrepps ræddi á fundi sínum í vikunni hvaða nafn ætti að gefa nýrri götu í þorpinu.
Gatan hefur haft vinnuheitið Vitagata eða Vitabraut. Sveitastjórn ákvað að kosið yrði á milli þriggja nafna í almennri íbúakosningu: Vitavegur; Vitahjalli og Húsahjalli.
Oddvita var falið að annast framkvæmd íbúakosningarinnar.
Misjöfn staða á heitum pottum og sundlaug
Á fundinum var einnig lögð fram eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða. Fram kemur að Gvendarlaugar hins góða í Bjarnafirði og einnig heitur pottur þar standast gæðakröfur skv. reglugerð 814/2010. En Sundlaugin á Drangsnesi og heitur pottur við sundlaugina stóðust ekki gæðakröfur. Klórbúnaður sundlaugar var bilaður og beðið eftir viðgerð.
Heitu pottarnir í fjörunni á Drangsnesi standast gæðakröfur svo og Vatnsveitan Drangsnesi.