Hafrannsóknastofnun hefur um árabil staðið fyrir merkingum á hvölum með gervitunglasendum. Markmið rannsóknanna er að auka þekkingu á hegðun hvala við landið og fari þeirra frá Íslandsmiðum að haustlagi. Árið 2018 voru rannsóknir þessar efldar í tengslum við víðtækar rannsóknir á loðnu og vistfræðilegum tengslum hennar við aðrar lífverur sjávar. Hnúfubak hefur fjölgað mikið við Ísland á síðustu áratugum og er tegundin hér við land í meira mæli að vetrarlagi en aðrar tegundir skíðishvala. Talsverður fjöldi hnúfubaka hefur sést á loðnumiðum á veturna og virðast þeir fylgja loðnugögnum að einhverju marki, þótt hluti stofnsins fari á æxlunarstöðvar í Karíbahafi og við
Grænhöfðaeyjar á veturna.
Margt er óljóst varðandi ferðir hnúfubaka og hugsanleg tengsl þeirra við loðnustofninn og er merkingunum m.a. ætlað að varpa ljósi á þessi tengsl. Gervitunglasendunum er komið fyrir á baki hvalanna með loftbyssu sem er sérhönnuð til slíkra merkinga. Auk merkinganna eru tekin lífsýni af hnúfubökunum, en greining ísótópa í slíkum sýnum geta gefið vísbendingar um fæðusamsetningu hnúfubaks hér við land sem er nánast óþekkt.
Þann 2 september s.l. voru merktir 7 hnúfubakar í Arnarfirði. Merkingarnar tókust vel og hafa borist upplýsingar um ferðir 6 dýranna. Á þeim fjórum dögum sem liðnir eru frá merkingu hafa hvalirnir haldið sig innan Arnarfjarðar en ferðast talsvert innan fjarðarins.