Nú fer endurskoðunarstefna sem eldur um sinu í vísnaheiminum. Eru gamlar og grónar vísur endurortar eða uppfærðar eins og það heitir í tölvuheimum.
Indriði á Skjaldfönn hefur tileinkað sér þessa stefnu og tók fyrir vísuna góðkunnu um afa sem fór á honum Rauð og lagfærði hana í takt við breytta tíma:
„Afi minn fór á honum Rauð“
-er það góður jeppi
„að sækja bæði sykur og brauð“
suður að Neðra-Hreppi.
Jón Atli Játvarðsson, Reykhólum sá kveðskapinn og bætti um betur:
Afi minn fór á honum Rauð
er það góður jeppi
sækja bæði sykur og brauð
og súra blóðmörskeppi.