![Holt_2019](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2019/08/Holt_2019-696x562.jpg)
Sandkastalakeppin fór fram í Holti í Önundarfirði í gær. Eru liðin rúm 20 ár síðan fyrsta keppnin var haldin. Fjölnir Ásbjörnsson hafði veg og vanda af undirbúningi keppninnar í ár og var býsna ánægður með hvernig til tókst þegar Bæjarins besta ræddi við hann. Hann taldi að um 350 manns hefðu komið og tekið þátt í viðburðinum og um 60 listaverk voru búin til í sandinum.
Sandkastalakeppnin er fyrst og fremst fjölskylduviðburður með engum aðgangseyri né neinum útgjöldum öðrum en kaupum á verðlaunabikar og verðlaunapeningum, sem Landsbankinn gefur af myndarskap.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2019/08/Holt2019_kastali_IMG_2618.jpg)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2019/08/Holt_2019_dreki.jpg)
Mynd: Fjölnir Ásbjörnsson.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2019/08/Holt_fjolmenni_IMG_2610.jpg)