Á Vestfjörðum voru 449 störf hjá ríkinu og opinberum stofnunum í lok árs 2017. Þetta kemru fram í skýrslu Byggðastofnunar um Ríkisstörf 31.12.2017.
Alls telst Byggðastofnun svo til að 24.300 störf séu á vegum ríkisins á landinu öllu og eru þar af 449 störf á Vestfjörðum. Það gerir 1,8%. Á höfuðborgarsvæðinu voru um 17.130 störf í lok árs 2017 eða liðlega 70% starfanna. Byggðastofnun greinir líka hvað störf ríkisins er stórt hlutfall þeirra sem eru á vinnumarkaði , þ.e. aldrinum 15-64 ára. Í heildina eru störfin 10,5% á landsvísu. Hlutfallið er hæst á höfuðborgarsvæðinu 11,5% og lægst á Suðurlandi 7,5%. Á Vestfjörðum er hlutfallið 9,7%.
Dreifin starfanna á Vestfjörðum eftir sveitarfélögum er þannig:
Ísafjarðarbær 324 störf 13%
Strandabyggð 35 störf 12%
Vesturbyggð 51 starf 7,5%
Reykhólar 11 störf 7%
Bolungavík 26 störf 4%