Um helgina verður á Vagninum á Flateyri vestfirsk útgáfa af veitingastaðnum vinsæla SNAPS í Reykjavík. Kokkarnir Daniel og Csaba koma vestur á Flateyri og annast matseldina í kvöld, föstudagskvöld og á morgun laugardag.
Með í för verður rekstrarstjórinn til þess að tryggja hnökralausa SNAPS veitingaþjónustu fjarri höfuðstaðnum. Það eru nýmæli að veitingarstaður í Reykjavík bjóði upp á þjónustu á landsbyggðinni.
Rekstraraðilar Vagnsins eru vongóð um að Vestfirðingar mun nýta sér þessa nýstárlegu þjónustu.
Á laugardag verður ball með hljómsveitinni SKE.