Verzlunarfjelag Árneshrepps opnar formlega verslun með pompi og prakt í dag mánudaginn, 24. júní kl 13.00
Af því tilefni verður haldin opnunarveisla þar sem Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra mun koma og opna verzlunina formlega.
Frá því er greint á vefnum Litla Hjalla að bakaðar hafi verið kleinur, pungar og tertur með merki Verzlunarfjelagsins svo það verður mikið um dýrðir!
Að sjálfsögðu verða ómótstæðileg opnunartilboð m.a. á Royal-búðingum og tómat-purée, svo það er eftir nokkru að slægjast!
Hlutafé verslunarfélagsins er 4 milljónir króna og Byggðastofnun styrkur verslunarreksturinn næstu þrjú árin um 7,2 milljónir króna.
Verslunarstjóri verður Árný Björk Björnsdóttir.