Áætlunarferðir milli Patreksfjarðar og Ísafjarðar

Brjánslækur.

Sumaráætlunin er þegar gengin í gildi og áætlunarferðirnar hafnar milli Patreksfjarðar og Ísafjarðar. Eru þær á vegum  Westfjords Adventures.

Sumaráætlun 2019 eru þrjár ferðir í viku, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga, tímabilið 1.júní til og með -31. ágúst, í samræmi við komu- og brottfarartíma ferjunnar Baldurs (fyrri ferð).

Ekið verði frá/ til bensínstöðvar N1, Patreksfirði og að / frá, ferjubryggju í Brjánslæk og eða afgreiðslu ferjunnar Baldurs, og Upplýsingamiðstöð ferðamanna og biðstöð við Pollgötu, Ísafirði.

Ekið er um Barðastrandarveg að Flókalundi og um Vestfjarðaveg 60 til Ísafjarðar.  Farþegar geti stigið af / á við Flókalund, Dynjanda og Þingeyri.

Frá Patreksfirði                kl 10.45

Frá Brjánslæk                   kl 11.45

Frá Þingeyri                      kl 14.05

Ísafjörður koma               kl 14.45

Frá Ísafirði :                      kl 15.30

Frá Þingeyri :                    kl 16.15

Frá Brjánslæk                   kl 18.45

Patrekfjörður koma        kl 19.30

Farþegar beini pöntun á akstri í gegnum verktaka Westfjords Adventures info@wa.is  sími 456 5006.

Ísafjörður – Þingeyri                         2.000 kr (eldri borgarar/börn 1.500 kr)

Ísafjörður – Brjánslækur                    8.400 kr. (eldri borgarar/börn 6.300 kr)

Ísafjörður – Patreksfjörður                9.900 kr. (eldri borgarar/börn 7.500 kr)

Patreksfjörður – Brjánslækur            3.000 kr (eldri borgarar/börn 2.300 kr)

Patreksfjörður – Ísafjörður                9.900 kr ((eldri borgarar/börn 7.500 kr).

Reiðhjól 3.500 kr.

Frekari upplýsingar er að finna á síðunni wa.is.

DEILA