Bæjarráð Ísafjarðarbæjar telur sér ekki fært að samþykkja beiðni pólska bæjarins Ustrzyki Dolne Commune um vinabæjarsamband. Bókað er að Ísafjarðarbær er lítið sveitarfélag sem er nú þegar í miklu alþjóðlegu samstarfi og hefur því miður ekki fjármagn og mannafla í að sinna frekari vinabæjarsamskiptum. Pólska sveitarfélagið er 17.000 manna samfélag í suðaustur hluta Póllands í Karpatafjöllunum nálægt landamærunum við Úkraínu. Bæjarfélagið varð til á 16. öld og fékk bæjarréttindi 1727 og var frá 1772 til 1918 hluti af Austurrísk- ungverska keisaradæminu.