Í fyrradag sigldi norsk skemmtiferðaskip, FRAM frá Hurtigruten, inn Reykjarfjörð í Strandasýslu og lagðist við akkeri við Djúpuvík. Að sögn Héðins Ásbjörnssonar komu tvö skip í fyrrasumar. Í sumar koma einnig tvö skip og mun seinna skipið koma um miðjan júní.
Um 60 manns fóru í land og skoðuðu verksmiðjuna og fengu sér hressingu og virtust njóta ferðarinnar vel. Ferðamennirnir voru flestir þýskumælandi.