Vegagerðin hefur samið við Suðurverk hf um lagningu á 7 km löngum kafla í Ísafjarðardjúpi í Hestfirði og Seyðisfirði. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2020.
Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur og auka umferðaröryggi vegfarenda á
Djúpvegi.
Veglínan mun að mestu fylgja núverandi vegi yfir Eiðið en til að draga úr hæð og halla hans er nokkuð stór skering vestan í Eiðinu, og stór fylling í framhaldi af henni, þar sem vegurinn liggur niður í Seyðisfjörð. Í botni Seyðisfjarðar, færist veglínan ofar í landið vegna lagfæringar á planlegu vegarins í vestanverðum fjarðarbotninum. Því eru töluverðar fyllingar og skeringar á því svæði. Vegurinn verður hannaður skv. staðli fyrir vegtegund C8, þ.e. með 7,0 m breiðri akbraut og 0,5 m breiðum öxlum. Klæðing verður 7,8 m breið.
Alls bárust 5 tilboð í verkið of var Suðurverk hf með lægsta tilboð 448.239.294 kr eða 87% af kostnaðaráætlun sem var 513.891.792 kr.
Þrjú tilboð voru undir kostnaðaráætlun og aðeins eitt var hærra en kostnaðaráætlun.
Þotan ehf, Bolungarvík átti næstlægsta tilboðið 498.849.295 kr eða 97% af kostnaðaráætlun.