Tilkynning frá AA samtökunum á Ísafirði:
AA samtökin á Ísafirði halda ávallt fund á föstudaginn langa í Ísafjarðarkirkju og hefst fundurinn nú kl: 20:00 í Ísafjarðarkirkju. Kaffiveitingar í boði eftir fundinn, sem félagarnir sjá um, kaffi, kökur og heimabakaðar að sjáfsögðu.
Á fundinum segir AA félagi sögu sína, og einnig ávarpar fulltrúi Alanon samtakanna sem eru samtök aðstandenda alkahólista ávarp. Einnig er einhver tólistarflutningur inn á milli, og lesin eru tólf reynsluspor AA samtakanna.
Fundurinn er öllum opinn og allir velkomnir.