Út er komin bókin Dúfnaregistur Íslands eftir Tuma Kolbeinsson. Um er að ræða alhliða fræðslu- og skemmtirit um dúfur, sögu dúfna á Íslandi og handbók í dúfnarækt.
Þetta er óvenjulegt viðfangsefni og gæt vel höfðað til margra. Í fréttatilkynningu er m.a. velt upp þessum spurningum:
Hefur þú oft velt fyrir þér sögu dúfunnar? Hefurðu kannski aldrei leitt hugann að tengslum dúfunnar og mannsins? Hefur þú ræktað dúfur eða gefið þeim brauðmola á torgum eða almenningsgörðum, kannski niðri við Tjörn? Þykja þér dúfur ógeðslegar eða gætirðu hugsað þér að hafa þær í matinn?
Þá er Dúfnaregistur Íslands bókin fyrir þig. Hún er allt í senn, sagnfræðirit, félagsfræðistúdía, ræktunarhandbók og uppspretta áhugaverðra staðreynda með matreiðsluívafi.
Útgefandi er Bókaútgáfan Sæmundur.