Grunnskólinn á Drangsnesi frumsýnir á föstudaginn, þann 12. apríl kl 19, í Grunnskólanum á Drangsnesi nýtt leikverk sem unnið er eftir fjórleik Magneu frá Kleifum um sveitastelpuna Sossu.
Eins og á flestum sýningum skólans er tónlist í hávegum höfð og ýmsir dægurlagasmellir sem hljóma í sýningunni, segir Marta Guðrún Jóhannesdóttir skólastjóri.
Allir nemendur skólans taka þátt í uppsetningunni ásamt leikskólabörnunum en samtals eru hér í Kaldrananeshreppi tólf börn á leik- og grunnskólaaldri. Hefð hefur skapast fyrir því að bjóða upp á veglegt hlaðborð að sýningu lokinni sem innifalið er í miðaverði.
Magnea Magnúsdóttir rithöfundur frá Kleifum í Kaldbaksvík fæddist 1930 og lést árið 2015.Hún ólst upp á Kleifum og flutti 15 ára að Drangsnesi og 19 ára til Skagastrandar. Hún fór í Kvennaskólann á Staðarfelli og nam við Tóvinnuskólann á Svalbarði. Eftir það bjó hún í Eyjafirði og fluttist 1959 til Akureyrar.
Magnea skrifaði fjölda barnabóka og eins bækur fyrir fullorðna. Á meðal vinsælla barnabóka Magneu má nefna sjö bækur um Hönnu Maríu, Sossu-bækurnar og var ein þeirra m.a. þýdd á dönsku, bækurnar um Tobías og sögurnar úr Krummavík. Þá skrifaði hún skáldsögurnar Karlsen stýrimaður, Hold og hjarta og Í álögum.