Einar Bragi skólastjóri Tónlistarskóla Vesturbyggðar hefur sent frá sér nýtt lag, lag tvö af verkefninu/plötu sem ber nafnið Landið Mitt,titlilagið er þegar komið út en nú er það lagið Hafdísin mín.
Í laginu leika Einar Scheving á trommur, Jóhann Ásmundsson á bassa ,Jón Hilmar gítar og ísfirski píanósnillingurinn Ingvar Alfreðsson auk Einars Braga á saxófón. Hægt er að nálgast lagið á spotify.