Á síðu Vestfjarðastofu er hægt að sækja um styrki til þriggja mismunandi mála.
Straumar :verkefni sem styrkir ungt listafólk
Straumar er verkefni sem styrkir ungt listafólk ættað af Vestfjörðum til að koma og deila sköpun sinni á heimaslóðum. Vestfjarðastofa kallar eftir umsóknum um styrki í verkefnið.
Veittir verða allt að 5 styrkir að hámarki 500.000 kr. hver.
Styrkirnir eru ætlaðir ungu listafólki og hönnuðum á aldrinum 20-35 ára sem hafa lokið námi úr viðurkenndum lista- eða hönnunarskóla eða er í námi sem leiðir til gráðu í viðkomandi grein. Umsækjendur skulu vera ættaðir af Vestfjörðum.
Styrkirnir skulu nýtast umsækjendum til að skapa viðburði eða deila sköpun sinni á Vestfjörðum á árinu 2019.
Sótt er um á slóðinni www.vestfirdir.is/straumar
fyrir kl. 16:00 mánudaginn 18. mars. 2019.
Öll vötn til Dýrafjarðar
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Þingeyri og við Dýrafjörð úr sjóði sem verkefnisstjórn veitir úr í umboði Byggðastofnunar vegna ársins 2019.
Umsóknum skal skilað á eyðublaði sem finna má á Þingeyrarvefnum, fésbókarsíðu Blábankans og heimasíðu Vestfjarðastofu. Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2019. Allir sem búa yfir hugmyndum að frumkvæðis- og/eða samfélagverkefnum í samfélaginu við Dýrafjörð eru hvattir til að sækja um.
Styrkhæf verkefni eru rannsóknar-, þróunar- og nýsköpunarverkefni þar sem markvisst er stefnt að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Einnig er heimilt að styrkja stofnfjárfestingu í hvers konar verkefnum að því gefnu að þau raski ekki samkeppni á viðkomandi þjónustusóknarsvæði. Enn fremur samfélagseflandi verkefni önnur en þau sem teljast til lögbundinna og/eða hefðbundinna verkefna ríkis eða sveitarfélaga.
Rannsókna- og nýsköpunarsjóður Vestur- Barðastrandasýslu