Patreksdagurinn verður haldinn hátíðlegur á Patreksfirði dagana 15. – 17. mars. Ýmsir viðburðir verða í gangi og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi segir í frétt um daginn á vef Vesturbyggðar.
Patreksdagurinn er hátíð haldin 17. mars til þess að minnast Heilags Patreks, eins af verndardýrlingum Írlands. Hátíðin er á þjóðhátíðardegi Írlands og þar sem Patreksfjörður heitir eftir heilögum Patrek er dagurinn haldinn hátíðlegur ár hvert.
Föstudagur 15. mars
- 22:00 til 01:00 – Pub Quiz á Stúkuhúsinu
Eldhúsið verður opið frá kl. 18:00 til 20:30. Happy hour frá kl. 18:30 til 19:30. Tilboð á Irish Coffee allt kvöldið.
Sunnudagur 17. mars
- 11:00 til 13:00 – Handverksstund fyrir krakka í Húsinu
Listgreinakennarinn Barbara Zach, sem dvelur nú í listamannaaðsetrinu í Húsinu, mun leiðbeina krökkunum að vefa úr ýmsum efnum. Öllum krökkum velkomið að kíja við. - 13:00 til 16:00 – Vöfflukaffi og tónlistaratriði í Húsinu
Vöfflukaffi í boði Vesturbyggðar í samstarfi við Húsið. Tónlistaratriði frá Einari Braga og Philip Zach. - 16:00 til 17:30 – Jón hrappur eimreiðastjóri í Skjaldborgarbíó
Fjölskyldumyndin Jón Hrappur eimreiðastjóri verður sýnd í boði Vesturbyggðar – aðgangur ókeypis.