Þingeyrarvefurinn minnist þess í dag að 78 ár eru frá árásinni á línuveiðarann Fróða ÍS 454 frá Þingeyri. Þennan dag árið 1941 réðist þýskur kafbátur á línuveiðarann Fróða frá Þingeyri um 200 sjómílur suðaustur af Vestmannaeyjum. Var skipið í Englandsferð, fulllestað af ísvörðum fiski.
Fimm skipverjar af ellefu létust í þessari skelfilegu árás. Þeir voru:
Bræðurnir frá Brekku í Dýrafirði, Gunnar J. Árnason skipstjóri og Steinþór Árnason háseti, Gísli Guðmundsson, háseti sem einnig var frá Brekku og Guðmundur Stefánsson háseti frá Hólum í Dýrafirði. Fimmti skipverjinn sem féll hét Sigurður V. Jörundsson, stýrimaður.
Lesa má frásagnir af árásinni á Fróða meðal annars í bókinni Virkið í Norðri eftir Gunnar M. Magnúss og ekki síst dramatíska frásögn Matthíasar Johannessen, ritstjóra, í ritröðinni M-samtöl.