Auglýst var eftir styrkumsóknum 17. desember 2018 úr sjóði sem verkefnisstjórn Allra vatna til Dýrafjarðar veitir úr í umboði Byggðastofnunar fyrir verkefnastyrki til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Þingeyri og við Dýrafjörð.
Umsóknarfrestur rann út 15. janúar 2019. Til úthlutunar voru 7 milljónir. Alls bárust 39 umsóknir sem er metfjöldi á landsvísu. Aldrei hafa borist eins margar umsóknir í tengslum við úthlutun í brothættum byggðum. Heildarumfang verkefna er umsóknir lúta að er um 120 milljónir. Sótt var um rúmlega 30 milljónir. Allt voru þetta umsóknir sem féllu vel að verkefninu Öll vötn til Dýrafjarðar. Reynt var að velja sem fjölbreyttust verkefni og m.a. var stuðst við stigagjöf eftir mat á tilteknum þáttum.
16 styrkir 7 milljónir króna
Úthlutað var styrkjum til 16 verkefna tengdum menningu og listum, atvinnuuppbyggingu og nýsköpun. Allt eru þetta verkefni sem verkefnisstjórn telur líkleg til árangurs og að þau muni hafa jákvæð áhrif á Þingeyri og við Dýrafjörð.
Verkefnin sem hlutu styrk voru þessi:
Blábankinn – Uppfærsla Þingeyrarvefsins 180.000 kr.
Pálmar Kristmundsson – Listaakademían á Þingeyri 500.000 kr.
Pálmar Kristmundsson – The Tank 1.000.000 kr.
Samfélagsmiðstöðin á Þingeyri ses (Blábankinn)
– Stafrænir flakkarar og störf án staðsetningar 1.000.000 kr.
Borgný Gunnarsdóttir
– Námskeið og fyrirlestrar Víkingaskóla Skálans 570.000 kr.
Sébastien Biet – Bicycle week 90.000 kr.
Austan Mána efh – Sköpunarsveimur 400.000 kr.
Golfklúbburinn Gláma Þingeyri – Aðstaða 980.000 kr.
Pálmar Kristmundsson
– Hjólreiðakeppnin Ísafjörður-Þingeyri 100.000 kr.
Wouter Van Hoeymissen
– Invite one family per year 2019-2020 500.000 kr.
Wouter Van Hoeymissen – Wall Pantings in Þingeyri 300.000 kr.
Jón Sigurðsson – Hljóðfærasafn 500.000 kr.
Sébastien Biet – Graphic desing courses 80.000 kr.
Kristín Þórunn Helgadóttir
– Handverkssýning/Opin vinnustofa 200.000 kr.
Marsibil G. Kristjánsdóttir
– Gíslasaga víkingaviðburðir og námskeið 400.000 kr.
Wouter Van Hoeymissen
– Invite Yasuaki Tanago to Þingeyri 2019 200.000 kr.