Óþarfa stækkun þorskstofnins um t.d. 300 þúsund tonn skapar extra fæðuþörf sem nemur 2,1 milljón tonna á ári.
Ef 30% af þeirri extra fæðuþörf er loðna – minnkar það eitt loðnuveiðar um rúm 600 þúsund tonn á ári – og rækjuveiði um 200 þúsund tonn ef 10% af þessari fæðu er rækja.
Samanlagt aflatap er þá 100 þúsund tonn þorskur á ári ( sem ætti að auka þorskveiðar um) 600 þúsund tonn loðna og 200 þúsund tonn rækja – samanlagt um 900 þúsund tonn á ári.
Árlegt gjaldeyristap af þessari röngu stefnu er meira en 100 milljarðar árlega.(fæðuþörf fiska er um 7 x eigin þyngd árlega (2% á dag).
35% af fæðu stórþorsks er svo smáþorskur og 100 þúsund tonn af óþarfa stórþorski étur þá 245 þúsund tonn af smáþorski (árlega) – sem hægt væri að veiða að hluta til… frekar en ríghalda í þessa heimskulegu / úreltu stefnu Hafró / ICES.
Níels Ársælsson,
skipstjóri
Tálknafirði