Umhverfisstofnun hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu:
„Umhverfisstofnun, ásamt landeigendum jarðarinnar Dranga og sveitarfélaginu Árneshreppi hefur uppi áform um friðlýsingu jarðarinnar Dranga á Ströndum. Áform um friðlýsingu skulu kynnt í samræmi við 2. mgr. 38. gr. náttúruverndarlaga. Gert er ráð fyrir að svæði sem ekki er á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár skuli kynnt sérstaklega.
Frestur til að skila athugasemdum við áformin er til og með 10. apríl 2019. Frekari upplýsingar á heimasíðu Umhverfisstofnunar, www.ust.is. Athugasemdum við áformin má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.“
Á fundi hreppsnefndar Árneshrepps þann 9. janúar 2019 var tekið fyrir bréf frá Umhverfisstofnun varðandi friðlýsingu Dranga og tilnefningu í starfshóp.
Bókað er í fundargerð:
„Upplýsingar liggja fyrir um að Fornasel ehf sem er skráður eigandi Dranga ákvað á aðalfundi sínum að fara í þessa vegferð með friðlýsingu. Hreppsnefnd tilnefndi Arinbjörn Bernharðsson sem fulltrúa sveitarfélagsins í starfshópnum.“