Fjöldi veiðidaga til bráðabirgða vegna hrognkelsisveiða verða 20 í ár. Þetta kemur fram í reglugerð sem gefin er út af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Þetta er sami fjöldi veiðidaga og áður, að því er kemur fram í tilkynningu. Þar segir að engar breytingar séu gerðar á reglugerðinni fyrir utan að ákvæði um upphafs- og lokatíma veiða er breytt í sama horf og var 2015.
„Í byrjun árs 2016 kom Hafrannsóknastofnun fram með ráðgjöf til ráðuneytisins um að svo virtist sem skipti máli að draga úr meðafla að veiðin hæfist seinna. Brugðist var við þessum ábendingum sbr. frétt á vef ráðuneytis,“ segir í tilkynningunni.
„Í bréfi Hafrannsóknastofnunar sem barst ráðuneytinu 24. mars kemur fram að reynslan af síðustu vertíð sýni ekki að þessi aðgerð hafi heppnast. Þvert á móti hefði skráður meðafli 2016 ekki verið meiri um árabil.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hvetur jafnframt grásleppuveiðimenn til að skrá allan meðafla af ýtrustu nákvæmni á næstu vertíð.
smari@bb.is