Vinna við Dýrafjarðargöng hefur gengið vel í vikunni. Setlagið sem stafninn hefur verið í síðustu vikur gekk hratt niður í vikunni og í lok hennar var allt jarðgangasniðið að nýju í góðu basaltlagi. Uppsetningu á styrktarbogun var hætt og sprengifærurnar lengdar upp í fulla 5 m lengd. Verkstaða í lok vikunnar er því þannig að lengd ganganna Dýrafjarðarmegin er orðin 519,4 m.
Samanlögð lengd ganga er nú 4.177 m sem er um 78,8% af heildarlengd.
Lengd að gegnumbroti er 1.124 m.
Meðfylgjandi myndir eru annars vegar frá 8. janúar af setlaginu og frá 12. janúar, þegar það var „gengið“ niður í gólfið.