Þorgeir Pálsson, sveitarstjóri í Strandabyggð segir að framkvæmdir við hitaveitu á Hólmavík fari af stað í þessum mánuði með frekari þolprófun á svæðinu. Þegar niðurstaða þeirra rannsókna liggur fyrir, ræðst framhaldið. Við vonum vissulega að niðurstaðan gefi tilefni til þess að halda áfram með verkefnið segir Þorgeir. Gert er ráð fyrir 5 milljóna króna framlagi til verksins í fjárhagsáætlun fyrir 2019.
Helstu framkvæmdir ársins verða við íþróttamiðstöðina 14 mkr., 8 mkr við ljósleiðara yfir í Ísafjarðardjúp og götur og gangstéttir 8,5 milljónir króna.
Yfirlit yfir fjárfestingar 2019:
Fjárfestingar skráðar í áætlun
Eignasjóður:
Lántaka 40.000.000 í eignarsjóði.
Leikskóli-hönnun, málun utanhúss/innanhúss, vinna í lóð, girðing, leiktæki kr.5.000.000 Grunnskóli-viðhald húsnæðis, aðgengi, öryggismál v.eldvarna, skápar v. náttúrufræði. kr. 2.000.000.
Félagsheimili-uppþvottavél, fellanleg borð skv. samningi, gólfefni félagsstarf, ljósleiðari. kr. 2.000.000.
Íþróttamiðstöð-kjallarahurð m.rampi, lagnavinna, nýtt efni á potta og vaðlaug, flotun á bakka, ljósleiðari og myndavélakerfi, 14.000.000.
Götur-Yfirlögn Lækjartún, Austurtún, Miðtún að hluta, Vesturtún og Vitabraut. Gangstétt við Þróunarsetur. 8.500.000.
Opin svæði- Hönnun skv. samningi við Verkís. kr. 2.000.000.
Réttir- Nýbygging í stað Staðarréttar. kr. 4.500.000.
Eignasjóður-Þróunarsetur, viðhald húsnæðis, gluggamálun og fl. kr. 500.000. Eignasjóður-Bragginn,endurbætur þ.e.niðurrif á jötum og fl. kr. 1.500.000.
Veitustofnun:
Fjármögnun, eigið fé og styrkir
Ljósleiðari í Djúp, kr. 8.000.000
Hitaveita, prufuborun og rannsóknir kr. 5.000.000
Vatnsveita:
Lántaka vatnsveita 8.000.000
Bygging dælustöðvar og kaup á dælu til að auka vatnsmagn innanbæjar, kr. 8.000.000
Hólmavíkurhöfn:
Lántaka kr. 7.000.000
Stálþil skv. samgönguáætlun 5.000.000, öryggismyndavélakerfi kr. 2.000.000